Katrín, sem er 39 ára, hefur ekki verið ljósmynduð á almannafæri í 59 daga og hún hefur ekki tekið þátt í neinum opinberum viðburðum á þessum tíma. News.com.au skýrir frá þessu.
Það má segja að í „starfslýsingu“ bresku konungsfjölskyldunnar felist að meðlimir hennar eiga að vera sýnilegir og það er ekki hægt að segja að Katrín hafi verið það síðustu tæpu tvo mánuðina. Hún tók síðast þátt í opinberum viðburði 11. júlí þegar hún var viðstödd úrslitaleik karla á Wimbledonmótinu í tennis. Þar voru teknar myndir af henni með Vilhjálmi og George syni þeirra. En eftir þetta hefur ekkert sést til hennar.
Á síðasta ári var lengsti samfelldi tíminn sem ekkert sást til hennar 41 dagur og 2019 var lengsti samfelldi tíminn 33 dagar.
Engar vísbendingar er að hafa á samfélagsmiðlum hjónanna eða bresku hirðarinnar um af hverju hún hefur ekki sést opinberlega svona lengi. Hjónin birtu þó mynd á samfélagsmiðlum í ágúst þar sem Katrín sést en sú mynd var tekin í janúar á síðasta ári.
Í umfjöllun News er haft eftir Daniela Ester, sem er titluð sem sérfræðingur í málefnum konungsfjölskyldunnar, að það sér erfitt að leiða ekki hugann að því að Katrín sé hugsanlega barnshafandi. Hjónin eiga þrjú börn en meðgöngurnar hafa reynst henni erfiðar líkamlega. En svo er auðvitað hugsanlegt að hún hafi bara tekið sér frí frá opinberum störfum.