Meðal þeirra sem hafa gagnrýnt hann eru Tony Blair, fyrrum forsætisráðherra Bretlands, og forveri hans í Hvíta húsinu, Donald Trump. Ástandið við alþjóðaflugvöllinn í Kabúl er skelfilegt en mörg þúsund manns hafa streymt þangað í þeirri von að komast á brott, ringulreið og ofbeldi setja mark sitt á ástandið utan við völlinn en inni á honum er staðan betri. Flugvöllurinn er á valdi hersveita frá Bandaríkjunum, Bretlandi, Þýskalandi og fleiri löndum.
Tony Blair gagnrýndi Biden um helgina og sagði að ákvörðun hans um að kalla bandaríska herliðið heim væri „rugl“. Blair var náinn samstarfsmaður George W. Bush, þáverandi Bandaríkjaforseta, þegar ákvörðun var tekin um að ráðast inn í Afganistan í kjölfar hryðjuverkaárásanna á Bandaríkin 2001. Blair segir að Biden hafi misst tökin á ástandinu í Afganistan.
Sunday Times sagði á sunnudaginn að innan bresku ríkisstjórnarinnar væri ákvörðun Biden um brotthvarf herliðsins frá Afganistan sögð vera „klikkuð“ og „algjör firring“. Heimildarmaður innan ríkisstjórnarinnar sagði að staðan minnti á bæði fyrri og síðari heimsstyrjöldina þar sem Bandaríkin hafi einnig brugðist, þá með því að koma Evrópu of seint til aðstoðar.
Boris Johnson, forsætisráðherra, er sagður hafa kallað Biden „Sleepy Joe“ en það er viðurnefni sem Donald Trump gaf honum í kosningabaráttunni á síðasta ári. Johnson er sagður hafa sagt að Bretar hefðu frekar viljað hafa Trump í Hvíta húsinu en Biden. Talsmenn Johnson hafa vísað þessu á bug en sérfræðingar segja að ummælin sýni vel hversu mikil spenna ríki á milli Washington og Lundúna.