fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Pressan

Danskir lífeyrissjóðir gagnrýna laun stjórnenda í atvinnulífinu – „Bara af því að það er mikið af peningum á maður ekki að taka þá alla“

Kristján Kristjánsson
Laugardaginn 14. ágúst 2021 14:00

Krónurnar streymdu yfir Eyrarsund.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tveir af stærstu fjárfestum Danmerkur, lífeyrissjóðirnir LD Fonde og AkademikerPension, telja að laun æðstu stjórnenda fyrirtækja, sem eru skráð á hlutabréfamarkaði, séu ekki nægilega gegnsæ og að bónusar þeirra séu alltof háir. Segja má að þessir stóru fjárfestar hafi nú hrundið af stað atlögu að háum launagreiðslum til stjórnenda fyrirtækja í Danmörku. Fulltrúar sjóðanna hafa á þessu ári greitt atkvæði gegn launahækkunum og bónusgreiðslum til stjórnenda fyrirtækja á aðalfundum þeirra.

Jótlandspósturinn hefur eftir Anders Scheldefjárfestingarstjóra hjá AkademikerPension, að gegnsæi skorti víða og oft sé jafnvægið á milli bónusa og fastra launa skakkt. Sjóðurinn á eignir upp á 140 milljarða danskra króna og er því stór aðili á hlutabréfamarkaðnum.

„Í flestum fyrirtækjum eru laun forstjóranna bara dropi í hafið en bara af því að það er mikið af peningum á maður ekki að taka þá alla,“ er haft eftir honum.

Hjá LD Fonde, sem á eignir upp á 55 milljarða danskra króna, er fólk sömu skoðunar og segir að fram að þessu hafi ekki verið tekið tillit til loftslagsmála, félagslegrar ábyrgðar og góðra stjórnunarhátta þegar bónusar stjórnenda eru ákveðnir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Hafa risavaxnir menn einhvern tímann verið til?

Hafa risavaxnir menn einhvern tímann verið til?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Athyglisverðar myndir prýða 1.600 ára gamlar myntir sem fundust á Ermarsundseyjunum

Athyglisverðar myndir prýða 1.600 ára gamlar myntir sem fundust á Ermarsundseyjunum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Páfagarður bannfærir erkibiskup sem sagði Frans páfa vera „þjón djöfulsins“

Páfagarður bannfærir erkibiskup sem sagði Frans páfa vera „þjón djöfulsins“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Færð þú frið í sumarfríinu? Fyrirtæki hafa samband við þriðja hvern starfsmann í sumarfríinu

Færð þú frið í sumarfríinu? Fyrirtæki hafa samband við þriðja hvern starfsmann í sumarfríinu
Pressan
Fyrir 5 dögum

Sjö ávanar sem gera tannlækninn þinn ríkan

Sjö ávanar sem gera tannlækninn þinn ríkan
Pressan
Fyrir 5 dögum

Fjallgöngumaður hvarf fyrir 22 árum – Fannst nýlega

Fjallgöngumaður hvarf fyrir 22 árum – Fannst nýlega
Pressan
Fyrir 5 dögum

„Gerist bara einu sinni á ævinni“ – Einstakt tækifæri til að sjá sprengingu á dvergstjörnu

„Gerist bara einu sinni á ævinni“ – Einstakt tækifæri til að sjá sprengingu á dvergstjörnu
Pressan
Fyrir 5 dögum

Grunaður um að hafa myrt konu og dætur íþróttafréttamanns með lásboga

Grunaður um að hafa myrt konu og dætur íþróttafréttamanns með lásboga