Samkvæmt umfjöllun People þá sýndi Thessalonica manni frá Michigan líkið sem hún geymdi í skáp í íbúðinni. Hún bað hann um aðstoð við að losna við það en það vildi hann ekki aðstoða hana við.
Hann tilkynnti lögreglunni síðan um málið. Thessalonica játaði við yfirheyrslu að hafa banað eiginmanni sínum og sagði að líkið væri enn í svefnherbergi dætra sinna. Þar fann lögreglan sundurhlutað líkið.
Dæturnar, sem eru á unglingsaldri, sögðust hafa heyrt háan hvell og síðan séð Randy liggjandi á gólfinu. Móðir þeirra bannaði þeim að hringja í lögregluna og bað þær um aðstoð við að losna við líkið og þrífa.
Á heimilinu fann lögreglan exi og hníf í skáp Thessalonica og var blóð á bæði exinni og hnífnum. Undir kodda í svefnherbergi dætranna fann lögreglan lista yfir það sem þyrfti að gera í tengslum við dauða Randy.