Gripið var til sóttvarnaaðgerða í lok júní vegna vaxandi fjölda smita af völdum kórónuveirunnar og áttu þær að gilda fram á næsta föstudag en verða nú framlengdar til 28. ágúst. Þetta þýðir að íbúar í Sydney, Wollongong og Blue Mountains mega ekki yfirgefa heimili sín nema til að kaupa matvörur og lyf eða til að fara til læknis.
Smit af völdum Deltaafbrigðis veirunnar hafa gert Áströlum erfitt fyrir með að halda áætlunum sínum um að fáir eða engir séu smitaðir í landinu. Á síðasta sólarhring greindust 177 með veiruna í New South Wales og hafa ekki verið fleiri á einum degi á þessu ári. Daginn áður greindust 172 smit. 46 voru ekki í sóttkví.
Stefna ástralska yfirvalda er að halda smitum eins nærri núlli og hægt er áður en hægt verður að slaka á sóttvarnaaðgerðum.
Í nágrannaríkjum New South Wales, South Australia og Victoria, er staðan allt önnur en þar var sóttvarnaaðgerðum aflétt í dag því engin virk smit eru í ríkjunum.
Áströlum hefur tekist ágætlega upp í baráttunni við faraldurinn frá upphafi hans en um 33.000 smit hafa greinst í landinu og 922 hafa látist af völdum COVID-19. Um 25 milljónir búa í landinu. Um 14% landsmanna hafa lokið bólusetningu en stjórnvöld hafa verið gagnrýnd fyrir hægagang í bólusetningum.