BBC og CNN skýra frá þessu og hafa eftir Cui Shuhon, sem stýrir náttúruverndardeild kínverska umhverfisráðuneytisins. Hann sagði að Kínverjar hafi komið upp góðu kerfi náttúruverndarsvæða. Stór hluti vistkerfa hafi kerfisbundið og algjörlega verið verndaður og með þessu hafi búsetusvæði panda orðið mun betur til þess fallin að styðja við líf þeirra.
Alþjóðlegu náttúruverndarsamtökin IUCN tóku pöndur af lista sínum yfir dýr í útrýmingarhættu 2016 og breyttu stöðu þeirra í „dýr í viðkvæmri stöðu“. Kínversk stjórnvöld voru ósátt við þetta og töldu þetta geta orðið til þess að fólk teldi að þau hefðu dregið úr aðgerðum sínum til að bjarga pöndum.
BBC hefur eftir sérfræðingum að stóran hluta af þessum góða árangri Kínverja megi þakka aðgerðum þeirra til að endurgera bambusskóga en 99% af fæði Panda er bambus.
En þrátt fyrir að nú gangi vel hjá pöndum þá er það ekki ávísun á að framtíð þeirra sé bara björt. IUCN hefur varað við því að loftslagsbreytingarnar muni eyðileggja rúmlega 35% af búsetustöðum panda, þar sem bambus er, innan næstu 80 ára.