Sky News segir að sex hús hafi hrunið og 25 til viðbótar séu í hættu á að hrynja í Schuld.
Mikil rigning hefur verið í vesturhluta landsins síðan í gær og hefur mikið tjón orðið. Mörg hundruð manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín og vitað er að minnsta kosti tveir létust í gær. Verst hefur ástandið verið í Nordrhein-Westfalen en þar þurfti að flytja íbúa nokkurra hverfa í Düsseldorf á brott frá heimilum sínum vegna ótta við að áin Düssel myndi flæða yfir bakka sína.
Í Rheinland-Pfalz var neyðarástandi lýst yfir í Vulkaneifel en þar er staðan mjög alvarlega að sögn yfirvalda. Margir vegir eru á kafi og ekki er hægt að komast til margra bæja og þorpa. Þar sem neyðarástandi hefur verið lýst yfir er hægt að kalla herinn til aðstoðar við björgunarstörf.
Uppfært klukkan 06:20
Nú hefur verið staðfest að fjórir hafa látist í óveðrinu, þar af tveir slökkviliðsmenn sem voru við björgunarstörf. Að minnst kosti 60 manns er saknað. Lögreglan í Schuld segir að staðan sé mjög óljós. Þyrlur eru á leið á vettvang en margir sitja fastir uppi á húsþökum og bíða björgunar.
Áin Nims sem er venjulega tveir metrar á breidd er nú 200 metrar á breidd. Reiknað er með áframhaldandi úrkomu í dag.