Mijac segir að Vit hafi hlaupið út á svalirnar og stokkið fram af þeim. En þessa sögu kaupir fjölskylda hennar ekki og óttast að Mijac hafi hrint henni fram af þeim. The Sun skýrir frá þessu.
Fram kemur að Mijac segist hafa verið í stofunni þegar Vit hafi komið hlaupandi út úr svefnherberginu rakleiðis út á svalir. Þar hafi hún stokkið yfir handriðið og út í opinn dauðann.
Fjölskylda Vit hefur grátbeðið lögregluna um að rannsaka málið ítarlega því útilokað sé að Vit hafi fyrirfarið sér. Þetta byggir fjölskyldan meðal annars á frásögn fjögurra ára dóttur hennar sem heyrði móður sína öskra rétt áður en hún hrapaði fram af svölunum.
Einnig hefur komið fram að Mijac hafði samband við lögmann skömmu eftir að eiginkona hans hrapaði til bana. Þetta þykir fjölskyldunni grunsamlegt og vill að lögreglan rannsaki þetta.