Stór lönd á borð við Þýskaland og Frakklands hafa tekið Tyrkland af lista yfir hááhættulönd og því geta ferðamenn þaðan farið til Tyrklands.
Tyrkneskir barir og veitingahús hafa því sett allt á fullt og vonast eftir miklum fjölda ferðamanna eftir dapra mánuði að undanförnu. Hvað heimamenn varðar þá geta þeir nú farið í bíó, tónleika og útgöngubann að næturlagi hefur verið fellt úr gildi.
Tyrkir hafa mikla þörf fyrir þá peninga sem koma með ferðamönnum en ferðamannaiðnaðurinn er gríðarlega mikilvæg tekjulind fyrir landið. Verðbólgan er mikil og gengi lírunnar hefur fallið mikið og því enn meiri þörf á gjaldeyristekjum en áður.
Recep Tayyip Erdogan, forseti, hefur margoft lagt áherslu á hversu mikilvægt það er að koma ferðamannaiðnaðinum í gang.
Veltan í geiranum dróst saman um 65% á síðasta ári og margir óttuðust að sumarið í ár yrði einnig mjög slæmt þegar ný bylgja skall á í apríl. Þegar verst lét í apríl voru staðfest smit 63.000 á sólarhring en eru nú um 5.000.
Það gengur hægt að bólusetja landsmenn en samkvæmt tölum frá Johns Hopkins hafa um 18% Tyrkja lokið bólusetningu.