Mike Ryan, farsóttafræðingur og yfirmaður hjá WHO, segir að í staðinn fyrir að aflétta nær öllum sóttvarnaaðgerðum á sama tíma eigi að aflétta þeim í áföngum.
Í bréfi vísindamannanna segja þeir að líklega sé fyrirætlun Johnson með afléttingu sóttvarnaaðgerðanna að leyfa nýjum smitum að blossa upp til að flýta því að hjarðónæmi náist í samspili við bólusetningar.
Ryan segist þó ekki trúa því að það sé fyrirætlun ríkisstjórnarinnar og sagði að ef svo sé þá sé það „faraldsfræðileg heimska“. The Guardian hefur þetta eftir honum. Hann varaði um leið Johnson við að kasta þeim góða árangri sem náðst hefur á glæ. „Í Evrópu er ein milljón nýrra smita í viku. Það er ekki bara þannig að faraldurinn sé horfinn,“ sagði hann.
Upphaflega ætlaði breska ríkisstjórnin að aflétta sóttvarnaaðgerðum þann 21. júní en því var slegið á frest um fjórar vikur vegna útbreiðslu hins mjög svo smitandi Deltaafbrigðis veirunnar. Þegar Johnson tilkynnti um frestunina sagði hann að með henni ætti að vera hægt að „byggja góðan vegg ónæmis“.
Á sunnudaginn sagði Johnson að faraldrinum sé ekki lokið og að reikna megi með að smitum muni fjölga á næstu vikum. „Þegar við byrjum að lifa með þessari veiru verða allir að meta áhættuna við kórónuveiruna og beita skynseminni alla daga,“ sagði hann.
128.000 hafa látist af völdum COVID-19 í Bretlandi. Nú greinast um 30.000 smit á dag og hafa samtök breskra lækna miklar áhyggjur af þróun mála og hvetja ríkisstjórnina til að láta ákveðnar sóttvarnaaðgerðir vera áfram í gildi.