Morðið átti sér stað við skóla í Flemingsberg. Tveir grunaðir flúðu í átt að miðbæ Flemingsberg eftir árásina að sögn Aftonbladet.
Lögreglan hóf strax umfangsmikla rannsókn og var fjöldi lögreglumanna á vettvangi og var árásarmannanna leitað á stóru svæði og var þyrla meðal annars notuð við leitina.
Lögreglan segir að bíl hafi verið ekið frá vettvangi skömmu eftir árásina en ekki liggi fyrir hvort hann tengist málinu en hans er leitað. Enginn hefur verið handtekinn.