BBC segir að yfirvöld gruni að kveikt hafi verið í þeim. CBC hefur eftir talsmanni slökkviliðsins í bænum Oliver að rannsókn hafi leitt í ljós að eldfimur vökvi hafi verið borinn að kirkju sem brann þar í bæ.
Tilkynnt var um fyrstu tvo brunana á mánudaginn en þá var National Aboriginal Day en þá fagna Kanadabúar frumbyggjum landsins og menningu þeirra.
Brunarnir áttu sér stað eftir að mörg hundruð ómerktar grafir fundust við kaþólska heimavistarskóla í Bresku Kólumbíu og Saskatchewan en málið er mikið áfall fyrir Kanadabúa.
Í lok maí fundust grafir með líkamsleifum 215 barna við Kamloops Indian Residental School í Bresku Kólumbíu. Síðasta miðvikudag fundust grafir 751 barns til viðbótar við Marievel Indian Residential School í Saskatchewan. Justin Trudeau, forsætisráðherra, sagði á fréttamannafundi á föstudaginn að honum væri illa brugðið vegna málanna. „Sá sársauki og það áfall sem þið hafið orðið fyrir verður Kanada að taka ábyrgð á,“ sagði hann.
Frá 1863 til 1998 voru rúmlega 150.000 börn frumbyggja tekin frá fjölskyldum sínum og send í um 130 heimavistarskóla í því skyni að aðlaga þau að kanadísku samfélagi. Ríkið fjármagnaði rekstur skólanna sem voru reknir af kaþólsku kirkjunni.
Börnin voru neydd til að taka afstöðu gegn móðurmáli sínu og menningu. 1920 var gert að skyldu að börn frumbyggja færu í skóla af þessu tagi og áttu foreldrar þeirra fangelsisdóma yfir höfði sér ef þeir sendu börnin ekki í þá.
Árið 2015 kom út skýrsla frá kanadíska dómstólaráðinu um þessa heimavistarskólastefnu stjórnvalda og var henni lýst sem „menningarlegu þjóðarmorði“ en skýrslan er um 4.000 blaðsíður. Í henni er því lýst í smáatriðum hvernig börnin fengu ekki nauðsynlega umönnun, húsakostur hafi verið lélegur og mörg þeirra hafi verið beitt kynferðislegu ofbeldi af kennurum og starfsfólki skólanna. Dánartíðni barna í þessum heimavistarskólum var mun hærri en dánartíðni annarra þjóðfélagshópa.
Fyrir fjórum árum bað Justin Trudeau Frans páfa um að biðjast afsökunar á þætti kaþólsku kirkjunnar í rekstri heimavistarskólanna en því hafa páfinn og kaþólska kirkjan hafnað.