fbpx
Miðvikudagur 02.apríl 2025
Pressan

Litháar saka Hvítrússa um að senda flóttamenn yfir landamærin

Kristján Kristjánsson
Laugardaginn 26. júní 2021 07:30

Minsk í Hvíta-Rússlandi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það sem af er ári hafa um 160 manns, aðallega Írakar, komið til Litháens frá Hvíta-Rússlandi. Þetta eru þrisvar sinnum fleiri en komu allt síðasta ár. Agne Bilotaite, innanríkisráðherra Litháen, segir að þessi flóttamannastraumur geti ekki verið nein tilviljun og segir að Hvítrússar sendi flóttamennina til Litháen til að reyna að raska jafnvæginu í landinu.

Samband ríkjanna hefur verið mjög stirt og mikil spenna ríkt á milli þeirra eftir forsetakosningarnar í Hvíta-Rússlandi á síðasta ári þar sem Aleksander Lukasjenko hélt völdum þrátt fyrir mikla andstöðu almennings en hann hefur barið hana niður harðri hendi.

Bilotaite segir að stjórnin í Hvíta-Rússlandi beiti nú blendingshernaði gegn Litháen og það að senda flóttamenn yfir landamærin sé liður í þeirri baráttu. „Þetta er vel skipulagt. Það er áætlunarflug frá Bagdad og Istanbúl til Minsk,“ sagði ráðherrann nýlega og vísaði þar til Íraka sem koma fljúgandi til Minsk, höfuðborgar Hvíta-Rússlands, og halda síðan áfram för sinni að landamærunum að Litháen.

Independent segir að það sem af er ári hafi um 160 manns, aðallega Írakar, komið til Litháen frá Hvíta-Rússlandi en það eru þrisvar sinnum fleiri en allt síðasta ár. Í síðustu viku voru níu Írakar handteknir á landamærunum þegar þeir reyndu að komast til Litháen frá Hvíta-Rússlandi.

Landamæri ríkjanna eru um 680 kílómetra löng og eru hluti af ytri landamærum ESB . Löndin hafa að undanförnu vísað stjórnarerindrekum hvors annars úr landi og í maí tóku refsiaðgerðir ESB gegn Hvíta-Rússlandi gildi en samkvæmt þeim mega þarlend flugfélög ekki fljúga í loftheldi ESB-ríkjanna né nota flugvelli þeirra. Þetta var gert eftir að flugvél frá Ryanair var neydd til að lenda í Minsk til að hægt væri að handtaka pólitískan andstæðing Lukasjenko.

Lukasjenko hefur svarað ásökunum Litháa og nýjum refsiaðgerðum með því að hóta að slaka á landamæraeftirliti hvað varðar flóttamenn og fíkniefni. Litháen hefur árum saman verið einn helsti gagnrýnandi Lukasjenko og stjórnar hans og í höfuðborginni Vilnius halda margir andstæðingar hans til en þeir eru í útlegð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Elon Musk reynir að múta kjósendum og kvartar undan gagnrýni í sinn garð – „Hver gleðst yfir svona?“

Elon Musk reynir að múta kjósendum og kvartar undan gagnrýni í sinn garð – „Hver gleðst yfir svona?“
Pressan
Í gær

Telja að lík Émile litla hafi verið geymt í frosti

Telja að lík Émile litla hafi verið geymt í frosti
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hún var kölluð Lafði Dauði

Hún var kölluð Lafði Dauði
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ný gögn frá NASA benda til að við eigum heima í svartholi

Ný gögn frá NASA benda til að við eigum heima í svartholi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sakamál: Brúðkaupsafmælið breyttist í martröð

Sakamál: Brúðkaupsafmælið breyttist í martröð
Pressan
Fyrir 3 dögum

Á að búa um rúmið á hverjum morgni?

Á að búa um rúmið á hverjum morgni?
Pressan
Fyrir 4 dögum

Mæðgur ákærðar – Létu barn bera rafmagnsól ætlaða hundum

Mæðgur ákærðar – Létu barn bera rafmagnsól ætlaða hundum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Tekist á um hár Ásu og dóttur hennar fyrir dómstólum og skilnaðurinn næstum frágenginn – „Það er kominn tími til að halda áfram með lífið“

Tekist á um hár Ásu og dóttur hennar fyrir dómstólum og skilnaðurinn næstum frágenginn – „Það er kominn tími til að halda áfram með lífið“