Kínverskt geimfar komst á braut um Mars fyrr á árinu og nokkrum vikum síðar byrjaði sexhjóla Marsbíll að senda myndir til jarðarinnar frá Mars en lending hans á Mars tókst vel.
Bandaríkjamenn eru enn í fararbroddi hvað varðar rannsóknir á Mars. Þeir lentu í fyrsta sinn á plánetunni 1976 og hafa nú lent 9 geimförum þar heilu og höldnu. Margar tilraunir þeirra mistókust og það sama má segja um tilraunir allra annarra þjóða. Árangur Kínverja er því athyglisverður, þeim tókst að lenda í fyrstu tilraun og það kom bandarískum sérfræðingum á óvart.
Það er langt frá því einfalt að lenda á Mars því plánetan er í mörg hundruð milljóna kílómetra fjarlægð frá jörðinni og fjarskiptamerki eru 18 mínútur á leið á milli plánetanna. Af þeim sökum verða forrit að stýra lendingum, mannshöndin getur ekki komið nærri.
Kínverjar eru nú byrjaðir á smíði geimstöðvarinnar Tiangong (Himnahöllin) og á hún að verða tilbúin til notkunar eftir um ár. 11 geimför verða send upp með byggingarefni og annað sem þarf til að smíða geimstöðina.
Reiknað er með að Alþjóðlega geimstöðin verði tekin úr notkun eftir þrjú ár en hugsanlega verður þó hægt að lengja líf hennar til 2028. En hvað sem því líður verður Tiangong eina starfhæfa geimstöðin eftir það, að minnsta kosti um hríð.
Kínverjar stefna einnig til tunglsins og það gera Bandaríkjamenn einnig. Kínverjum tókst fyrstum þjóða að lenda á bakhlið tunglsins en það gerðu þeir 2019. Í desember á síðasta ári kom kínverskt geimfar með grjót og tunglryk aftur til jarðarinnar.
Í mars tilkynntu Kínverjar og Rússar að þeir hafi í hyggju að starfa saman við að koma upp geimstöð á tunglinu eða á braut um það. Ekki hefur enn verið tekin ákvörðun um hvort geimstöðin verði á tunglinu eða á braut um það.
Segja má að tunglkapphlaup standi yfir eftir að Donald Trump tilkynnti 2017 að Bandaríkin ætluðu að setja Artemis-áætlunina af stað. Ef allt gengur upp mun hún ná hámarki 2024 þegar fyrsta konan stígur fæti á tunglið.
Kínverjar stefna á að senda fólk til tunglsins 2025. Þeir ætla einnig að senda geimför langt út í geim á næstu árum. 2024 á að senda geimfar til móts við loftstein, til Mars og aftur til jarðarinnar á árunum 2028 til 2030 og til Júpíters 2029-2030. Einnig hafa þeir í hyggju að senda geimfar til Úranusar.