Ákveðið var að gera stíginn á meðan heimsfaraldurinn herjar á heimsbyggðina því lítið er um ferðamenn og því tilvalið að fara út í framkvæmdir. Lagning hans er hluti af endurnýjun og viðhaldi á þessum sögufræga stað.
Búið er að koma nýrri lyftu fyrir við norðurendann en hún getur flutt tvo hjólastóla í einu. Markmiðið er að sjálfsögðu að bæta aðgengi fatlaðra.
En fornleifafræðingar eru ósáttir við þetta og telja að endurbæturnar og framkvæmdirnar hafi farið úr böndunum. Þeir segja svo rangt að leggja steinsteyptan stíg upp að þessum sögufræga stað eingöngu til að þóknast ferðamönnum. Þetta sé gert á kostnað varðveislu þessa sögufræga staðar. 3.500 manns hafa skrifað undir opið bréf þar sem hvatt er til þess að stígarnir verði fjarlægðir og allar yfirstandandi framkvæmdir verði stöðvaðar sem og allar fyrirhugaðar framkvæmdir.
Telja bréfritarar að með lagningu stígsins og annarra stíga sé verið að eyðileggja náttúrulegt umhverfi Akropolis og gjaldfella það. The Guardian segir að einnig hafi því verið haldið fram að framkvæmdirnar séu „hneyksli á alþjóðlegan mælikvarða“, sérstaklega í ljósi þess að Akropolis er á Heimsminjaskrá UNESCO.