Ríkisstjórinn og Repúblikaninn Jim Justice hefur tilkynnt að dregið verði úr nöfnum þeirra sem láta bólusetja sig og geta þeir unnið veiðiriffla og haglabyssur, pallbíla og veiðileyfi. Einnig eru skólastyrkir í boði og gilda þeir í alla háskóla í ríkinu.
Einnig eru peningaverðlaun í borði. Einn heppinn fær 588.000 dollara og annar 1,6 milljónir.
Lottóið verður í gangi á milli 20. júní og 4. ágúst og er fjármagnað með opinberu fé.
NBC News hefur eftir Justice að það skipti miklu máli að fá fleiri til að láta bólusetja sig til að bjarga mannslífum og koma efnahag ríkisins í jafnvægi.
Af 1,8 milljónum íbúa ríkisins hafa um 51% fengið að minnsta kosti einn skammt af bóluefni og um 40% hafa lokið bólusetningu.