Umræður hafa staðið yfir um þetta stóra mál í um 20 ár og standa enn yfir. En í kitlunni fyrir nýja endurfundaþátt Vinanna koma leikararnir sjálfir með svör við hvað þeim finnst um þetta.
Hinn þaulreyndi þáttastjórnandi James Corden ræðir við leikarana í endurfundaþættinum og spyr þau hreint út: „Voru Ross og Rachel í pásu?“
„Já, já, já, já,“ svara fjórir af leikurunum strax en Matt LeBlanc, sem lék Joey, var ekki sömu skoðunar. „Bullshit“ (kjaftæði) sagði hann. En í kitlunni kemur ekki fram hvað David Schwimmer, sem lék Ross, sagði. Við verðum víst að bíða eftir að sjá þáttinn í fullri lengd til að fá að vita afstöðu hans til þessa stóra máls.