Það sem er til rannsóknar er hvort Trumpsamsteypan hafi villt fyrir lánveitendum og tryggingafélögum um virði fasteigna og annarra eigna og hvort fyrirtækið hafi ekki greitt það sem því bar í skatt.
Ef til þess kemur að ákæra verður gefin út í málinu þá er Trump reiðubúinn til að fórna öllum í kringum sig til að sleppa við fangelsisdóm að mati Cohen. Hann sagði að þar á meðal væru börn hans, Eric, Donald Jr. og Ivanka en þau eru öll í toppstöðum hjá fyrirtækjasamstæðunni sem nú er til rannsóknar.
„Ég tel í alvöru að Donald Trump muni aðeins hafa áhyggjur af sjálfum sér þegar hann áttar sig á að spilið sé tapað,“ sagði Cohen sem var lögmaður Trump frá 2006 til 2018. Hann hefur skýrt opinskátt frá þeim lögbrotum sem hann gerðist sekur um þegar hann starfaði fyrir Trump og var dæmdur í fangelsi fyrir skattsvik, svindl með kosningafé og fyrir að hafa fengið greitt fyrir að fela slóð Trump eftir ástarævintýri hans utan hjónbands, þar á meðal með klámmyndaleikkonunni Stormy Daniels.
Cohen segir að viðbrögð Trump við skattrannsókninni verði svipuð og hvað varðar önnur mál honum tengd. „Það er aldrei Donald sem gerir eitthvað. Það er alltaf einhver annar. Hann mun segja þeim að allir aðrir hafi vitað um þetta en ekki hann sjálfur. Donald Jr. sá um þetta, Ivanka sá um skattamálin. Þið eigið ekki að taka mig, takið Melania. Þannig er hann. Hann mun fórna öllum, einnig Ivanka,“ sagði Cohen.