The Guardian skýrir frá þessu. Fram kemur að hjónin séu grunuð um að hafa gefið syni sínum róandi lyf, síðan drepið hann og hlutað lík hans í sundur. Eftir handtökuna játuðu þau að hafa drepið dóttur sína fyrir þremur árum og að hafa hlutað lík hennar í sundur. Sömu sögu er að segja af tengdasyni þeirra en hann myrtu þau fyrir 10 árum.
Málið hefur vakið mikla athygli í Íran og sagði eitt dagblað í fyrirsögn: „Samfélagið er í áfalli.“ Málið hefur vakið upp heitar umræður um réttarvörslukerfið í landinu. Fyrir morð er refsingin yfirleitt dauðadómur en það ákvæði á ekki við þegar foreldrar myrða börn sína. Við því liggur að hámarki tíu ára fangelsisdómur að sögn The Guardian. Hjónin gætu þó fengið dauðadóm ef þau verð fundin sek um að hafa myrt tengdason sinn.
Hjónin eru sögð hafa myrt tengdasoninn af því að hann var ofbeldishneigður. Dótturina myrtu þau af því að hún var háð fíkniefnum en sonurinn vann sér það til saka, að þeirra mati, að eiga í ástarsamböndum við sér yngri konur.
„Ég sé ekki eftir því sem ég gerði ásamt eiginkonu minni. Þau voru ónýt og ég þakka guði,“ sagði faðir þeirra um morðin.