Andrew Womble, saksóknari kynnti á þriðjudaginn niðurstöðu rannsóknar sinnar á málinu. Hann sagði að lögreglumenn hefðu verið í fullum rétti til að skjóta Brown því hann hafi stofnað lífi þeirra í hættu þegar hann flúði af vettvangi.
Brown, sem var 42 ára, var skotinn til bana þegar lögreglumenn komu heim til hans til að handtaka hann en hann var grunaður um fíkniefnamisferli.
Womble sagði að Brown hafi verið í bíl sínum við heimili sitt. Lögreglumennirnir hafi umkringt bílinn og beðið hann um að stíga út. Við því varð hann ekki og hafi stigið á bensíngjöfina og hafi stefnt á lögreglumenn. „Aðgerðir Brown urðu til þess að þrír lögreglumenn mátu það sem svo, réttilega, að þeim væri nauðugur einn kostur að beita banvænu valdi til að vernda sig og aðra,“ sagði Womble.
Hann sagði að lögreglumennirnir hafi skotið 14 skotum á bílinn á 44 sekúndum. Í bíl Brown fannst lítilræði af amfetamíni en ekkert skotvopn.
Fjölskylda Brown og lögmenn hennar hafa sakað lögregluna um að hafa tekið hann af lífi því hann var meðal annars skotinn í hnakkann. Það leiddi krufning, framkvæmd af óháðum réttarmeinafræðingi, í ljós.
Drápið á Brown átti sér stað sama dag og lögreglumaðurinn Derek Chauvin var fundinn sekur um að hafa drepið George Floyd.