Þetta hefur í för með sér að tæplega hálf milljón sýna er tekin á sólarhring. Þetta kostar ríkissjóð um 60 milljónir danskra króna á dag en það svarar til um 1,2 milljarða íslenskra króna. Þetta sýna útreikningar Danska ríkisútvarpsins og tók Jes Søgaard, prófessor í heilbrigðishagfræði við Syddansk háskólann, undir þessa niðurstöðu. „Danmörk er eitt þeirra ríkja heims sem tekur flest sýni. Það hefur átt sinn þátt í að við höfum ekki lent í þriðju bylgjunni. Ef við myndum fá nýja og öfluga bylgju, eins og gerðist í Þýskalandi, myndu sóttvarnaráðstafanir kosta okkur minnst 2,3 milljarða (danskra króna, innsk. blaðamanns) á viku,“ hefur Danska ríkisútvarpið eftir honum. Hann sagði að peningunum, sem fara í sýnatökuna, sé því vel varið.
Miðað við þann fjölda smita sem greinast daglega má kannski segja að það kosti sem svarar til 1,5 milljóna íslenskra króna að finna hvert smit. Lone Simoensen, prófessor og farsóttafræðingur við háskólann í Hróarskeldu, sagði að þessum peningum væri vel varið. „Sýnataka er stór hluti af skýringunni á að við höfum haft stjórn á faraldrinum. Klikkunin gefur því góða meiningu,“ sagði hún. Hún sagðist þó telja að á ákveðnum tímapunkti verði kostnaðurinn of hár. „Ég tel að þegar við erum búin að bólusetja alla 50 ára og eldri og jafnvel allt niður í fertugt, sem vilja bólusetningu, þá getum við farið að hægja á. Þá getum við farið að draga úr sýnatökum,“ sagði hún.