Móðirin deildi þessari sögu og myndum á Facebooksíðunni Family Lowdown Tips & Ideas. „Þetta er bara tveggja ára sonur minn að þrífa klósettið með tannbursta,“ skrifaði hún við myndband sem hún birti einnig á síðunni.
Ekki er annað að sjá en drengurinn sé hæstánægður með sjálfan sig og þrifin og auðvitað eldrauðan tannbursta móður sinnar.
Færslan hefur vakið mikla lukku meðal lesenda og athugasemdir frá foreldrum sem hafa lent í svipuðum uppákomum.
„Þú stóðst hann að minnsta kosti að verki. Er annað hægt en að elska þau?“ skrifar einn í athugasemd.
„Hann er allt of sjálfsöruggur,“ skrifar annar lesandi og sá þriðji skrifar: „Það lítur út eins og þetta sé ekki í fyrsta sinn og að þú hafir fengið klósettvatn í munninn.“