Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Florida Atlantic University, FAU. Í nýrri rannsókn vísindamanna við FAU rannsökuðu þeir hvernig sjúkdómar á borð við COVID-19 geta leynst í hægðum okkar og hvernig þeir geta hugsanlega dreifst með örsmáum dropum sem skjótast út í loftið þegar sturtað er niður. Þeir komu mælitækjum fyrir nærri klósettum og voru þau í mismunandi hæð. Með þessu gátu vísindamennirnir mælt hversu margar agnir svifu í loftinu áður en sturtað var niður, á meðan sturtunarferlið var í gangi og að því loknu.
Þrjár sviðsmyndir voru rannsakaðar en þær voru þegar sturtað er niður og klósettið er ekki lokað, þegar klósettið er lokað og þegar sturtað er niður úr þvagskál.
Mesta dreifing dropanna var þegar klósettið var ekki lokað en þótt það sé lokað sleppur töluvert magn þessar litlu dropa út á milli setunnar og loksins.
Vísindamennirnir segja að það sé töluvert vandamál að jafnvel þótt góð loftræsting sé og vel loftað út á salernum þá geti þessir litlu dropar svifið í loftinu klukkustundum saman.
Bæði klósettin og þvagskálarnar sendu frá sér mikið magn örsmárra dropa, sem voru undir 3 míkrómetrum að stærð, en þeir geta verið hættulegir ef þeir bera smitandi örverur með sér. Vegna þess hversu litlir þessir dropar eru geta þeir svifið í loftinu mjög lengi.
Vísindamennirnir telja því að það þurfi að beina sjónunum betur að útloftun á almenningssalernum því það sé besta leiðin til að berjast gegn smitum.
Niðurstöður rannsóknarinnar hafa verið birtar í vísindaritinu Physics of Fluids.