Vinna lögreglunnar varð til þess að nú hefur maðurinn verið ákærður fyrir morð sem átti sér stað um borð í ferjunni Viking Sally sem var á siglingu frá Svíþjóð til Finnlands. Á leiðinni var Klaus Schelke, 20 ára Þjóðverji, myrtur þar sem hann svaf ásamt unnustu sinni, Bettina Taxis 22 ára, á þyrlupalli ferjunnar. Bettina lifði hrottalega árásina af en var meðvitundarlaus vikum saman.
Daninn var 18 ára skáti þegar þetta gerðist og var, að því að talið var, sá sem fann þýska parið liggjandi í blóði sínu um miðja nótt.
BT segir að hvorki finnsk yfirvöld né verjandi mannsins vilji skýra frá því hvað varð til þess að maðurinn hefur nú verið ákærður fyrir morð og morðtilraun. BT segir að miðað við það sem kemur fram í dómsskjölum réttarins í Lyngby megi ráða að það hafi verið smáskilaboðasendingarnar til eiginkonunnar fyrrverandi sem hafi beint grun lögreglunnar að honum.
Hann hafði einnig í hótunum við fjölda lögreglumanna og lýsti sjálfum sér sem „tifandi sprengju“ sem hefði engu að tapa „öðru en lífi mínu sem mér er skítsama um“.
Maðurinn á langan sakaferil að baki og hefur eytt mörgum árum á bak við lás og slá. Hann hefur verið dæmdur fyrir ofbeldisbrot og hótanir, rán, ólöglega vörslu vopna og þjófnaði. Hann hefur margoft flúið úr fangelsi, meðal annars með því að grafa göng með teskeið og með því að klifra yfir fangelsismúrinn með stiga sem hann bjó til úr fjölum úr rúmbotni.
Réttarhöld í málinu hefjast í Turku 24. maí. Daninn neitar sök.