Emmanuel Macron, Frakklandsforseti, sagði í gær að handtökurnar væru afrakstur margra mánaða viðræðna ítalskra og franskra yfirvalda. Mario Draghi, forsætisráðherra Ítalíu, fagnaði handtökunum: „Minningarnar um þessar villimannslegu aðgerðir lifa enn í vitund Ítala,“ sagði í fréttatilkynningu sem hann sendi frá sér og á hann þar við hryðjuverk Rauðu herdeildanna.
Þær stóðu áratugum saman á bak við fjölda ofbeldisverka og morða á Ítalíu. Þar á meðal rændu liðsmenn samtakanna Aldo Moro, þekktum stjórnmálamanni, 1978 og myrtu hann. Þeir sex liðsmenn Rauðu herdeildanna sem voru handteknir í gær höfðu allir verið dæmdir í ævilangt fangelsi fyrir þátttöku í morðum og öðrum ofbeldisverkum.
Á níunda áratugnum flúið fjöldi öfgavinstrimanna frá Ítalíu til Frakklands en Francois Mitterand, þáverandi Frakklandsforseti, hét þeim vernd gegn framsali. Þetta hefur alla tíð síðan sett mark sitt á samband ríkjanna. Macron sagði í gær að það hefði aldrei verið ætlunin að fólk með „blóðugar hendur“ myndi njóta verndar í Frakklandi.
Ítalir hafa nafngreint fjölda annarra öfgasinna sem þeir vilja fá framselda vegna aðildar þeirra að hryðjuverkum. Handtökur gærdagsins eru fyrsta skrefið í átt að bættu sambandi Ítalíu og Frakklands að mati yfirvalda í báðum ríkjum.
BBC hefur eftir Marta Cartabia, dómsmálaráðherra Ítalíu, að handtökurnar séu sögulegar en utanríkisráðuneytið segir að þær séu sönnun þess að enginn geti flúið undan ábyrgð sinni, frá þeim sársauka sem þeir hafi valdið öðrum.
Irene Terrel, lögmaður eins hinna handteknu, sagði í gær að handtökurnar væru „óskiljanleg svik Frakka“. „Þetta fólk hefur notið verndar Frakka allt frá níunda áratugnum. Það hefur byggt líf sitt upp á nýjan leik í 30 ár án þess að leynast. Það hefur eignast börn og barnabörn . . og síðan snemma dags, 40 árum síðar, er komið að leita að þeim,“ sagði hún.
Nú kemur í hlut franskra dómstóla að úrskurða hvort fólkið verði framselt til Ítalíu.