Hún var eftirlýst vegna málsins, sökuð um fjárdrátt, og gat ekki breytt nafninu á ökuskírteini sínu vegna þessa.
Local21 skýrir frá þessu. Fram kemur að hún hafi gifst manni frá Texas og hafi flutt þangað frá Oklahoma. Hún ætlaði að breyta eftirnafninu á ökuskírteini sínu þegar hún tók eftirnafnið hans upp. Vegna heimsfaraldursins varð hún að panta tíma til að geta gert það og sendi hún því tölvupóst og ætlaði að panta tíma. Hún fékk fljótlega svar þar sem kom fram að hún gæti ekki breytt nafninu vegna „vanda í Oklahoma“. Með fylgdi símanúmer sem hún gat hringt í en það var hjá saksóknara í Cleveland County sem var með mál hennar á sinni könnu. Hún hringdi og ræddi við konu þar og fékk útskýringu á málavöxtum.
„Hún sagði mér að þetta snerist um VHS-spóluna og ég neyddist til að biðja hana um að endurtaka þetta því mér fannst þetta klikkað. Hún hlaut að vera að gera at í mér? En það var hún ekki að gera,“ sagði McBride.
Það sem gerir málið enn verra í hennar augum er að það var ekki einu sinni hún sem leigði myndina og hún hefur ekki séð hana. „Ég bjó með ungum manni á þessum tíma fyrir rúmlega 20 árum. Hann átti tvö börn. Dætur, 8 og 10 eða 11 ára, og ég held að hann hafi leigt myndina fyrir þær og gleymt að skila henni. Ég hef aldrei séð þessa þætti, þeir eru ekki eitthvað fyrir mig,“ sagði hún og bætti við: „En ég er eftirlýstur glæpamaður vegna þessa.“
Fréttamaður Local21 setti sig í samband við saksóknarann sem var með málið til meðferðar. Hann sagðist hafa ákveðið að fella málið niður eftir að hafa farið yfir það. Caron McBride er því ekki lengur eftirlýst.