The Wall Street Journal er meðal þeirra fjölmiðla sem hafa fjallað um slysið. Fram kemur að viðbragðsaðilar hafi verið sendir á vettvang eftir að tilkynnt var um sprengingu í skógi. Það reyndist vera Tesla sem hafði lent á tré.
Það tók fjórar klukkustundir að slökkva eldinn sem blossaði upp við ákeyrsluna.
Mennirnir tveir sátu annars vegar í aftursæti og hins vegar í farþegasætinu að sögn lögreglunnar sem segist vera 99,9% viss um þetta.
Talsmaður Tesla sagði að það sé öruggara að keyra í Tesla með sjálfstýringuna á en án en hún sé aðstoðartæki við aksturinn og komi ekki í stað ökumanns.