Abdul og samverkamenn hans eru grunaðir um að hafa stolið fjölda ómetanlegra demanta úr listaverkasafninu í Grünes Gewölbe í Dresden. The National segir að margt bendi til að Abdul nái að leynast með því að nýta sér víðtækt tengslanet sitt í undirheimunum.
Það var þann 25. nóvember 2019 sem grímuklæddir menn komust inn á safnið og stálu demöntum sem voru þar til sýnis. Talið er að þeir hafi stolið demöntum að verðmæti rúmlega eins milljarðs evra.
Þjófunum tókst að tryggja sér vinnufrið með því að kveikja eld í spennistöð nærri safninu. Rafmagn fór þá af svæðinu og þjófavarnarkerfi safnsins slökkti á sér vegna rafmagnsleysis. Þjófarnir gátu því klippt járnrimla, sem voru fyrir glugga, í sundur og komist inn. Þeir létu síðan greipar sópa á nokkrum mínútum og höfðu sig á brott.
New York Times hefur eftir Jürgen Schmidt, sem er saksóknari í málinu, að lögreglunni hafi tekist að tengja hina grunuðu við þjófnaðinn með því að fylgjast með þeim og með því að nota hátæknibúnað.
Þýsk yfirvöld segja að um 1.000 manns tilheyri Remmogenginu og að margir þeirra tengist fjölskylduböndum, séu komnir af arabíska minnihlutanum í Tyrklandi. Meðlimir gengisins hafa komið að mörgum stórum ránum og þjófnuðum í Þýskalandi síðan á tíunda áratugnum. Sem dæmi um umfang afbrota þeirra má nefna að 2017 gat lögreglan tengt meðlimi gengisins við 1.000 afbrot.