fbpx
Laugardagur 23.nóvember 2024
Pressan

Þýsk yfirvöld loka landinu nánast – Framlengja páskana og fólk á að halda sig heima

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 23. mars 2021 05:33

Fjórða bylgjan geisar nú. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Núna erum við líklega á hættulegasta tímapunkti heimsfaraldursins,“ sagði Markus Soeder, forsætisráðherra Bæjaralands í gær og átti þar við að ný afbrigði kórónuveirunnar dreifast nú hratt um samfélagið. Angela Merkel, kanslari, hefur sagt að nú glími Þjóðverjar við veldisvöxt faraldursins.

Merkel og leiðtogar sambandsríkjanna náðu í gær samkomulagi um að framlengja núgildandi sóttvarnaaðgerðir til 18. apríl. Merkel varaði landa sína við að ferðast til útlanda og sagði að stjórnvöld hafi náð samkomulagi við flugfélög um að allir farþegar þeirra verði að fara í sýnatöku áður en þeim er hleypt um borð.

Hún sagði að staðan sé mjög alvarleg og nú sé um kapphlaup við tímann að ræða við að bólusetja landsmenn. Því þurfi að draga úr fjölda nýrra smita til að áhrif bólusetninga verði enn meiri. Hún sagði að það sé breska afbrigðið sem valdi flestum smitum þessa dagana.

Hún tilkynnti að páskarnir verði framlengdir og að fólk eigi að halda sig heima. 1. til 5. apríl verða „rólegir dagar“ þar sem fólk á að forðast samneyti við annað fólk sagði hún og að fimm fullorðnir, frá tveimur heimilum, megi að hámarki hittast á þessum tíma.

Núverandi sóttvarnaaðgerðir hafa verið í gildi síðan 16. desember og verða nú framlengdar til 18. apríl.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Pútín gefur Norður-Kóreumönnum óvenjulega gjöf

Pútín gefur Norður-Kóreumönnum óvenjulega gjöf
Pressan
Fyrir 2 dögum

Maðurinn sem á að verða næsti varnarmálaráðherra Bandaríkjanna borgaði þöggunargreiðslu til konu sem sakaði hann um nauðgun

Maðurinn sem á að verða næsti varnarmálaráðherra Bandaríkjanna borgaði þöggunargreiðslu til konu sem sakaði hann um nauðgun
Pressan
Fyrir 3 dögum

Neyddu drengi til að brjóta kynferðislega á smábarni

Neyddu drengi til að brjóta kynferðislega á smábarni
Pressan
Fyrir 3 dögum

Piers Morgan biður grenjandi vinstri menn vinsamlegast um að halda kjafti – „Ég er kominn með nóg af þessu“

Piers Morgan biður grenjandi vinstri menn vinsamlegast um að halda kjafti – „Ég er kominn með nóg af þessu“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Trumpistar brjálaðir út í 60 mínútur – „Þessi ógeðslega hlutdrægni og vanstillti fréttaflutningur“

Trumpistar brjálaðir út í 60 mínútur – „Þessi ógeðslega hlutdrægni og vanstillti fréttaflutningur“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Demókratar þurfi að fara í naflaskoðun eftir að þau gleymdu mikilvægustu lexíu fyrri ára – „Þetta snýst um efnahaginn, fíflið þitt“

Demókratar þurfi að fara í naflaskoðun eftir að þau gleymdu mikilvægustu lexíu fyrri ára – „Þetta snýst um efnahaginn, fíflið þitt“