Samkvæmt fréttum bandarískra fjölmiðla bárust fyrstu tilkynningar um skothríð klukkan 14.30 að staðartíma í gær. Fimm klukkustundir liðu þar til lögreglan tilkynnti að hún hefði náð stjórn á vettvangi. Þetta er annað fjöldamorðið í Bandaríkjunum á einni viku en 17. mars voru átta skotnir til bana á nuddstofum í Atlanta.
Sjónvarpsstöðvar sýndu þegar hvítur karlmaður, aðeins í nærfötum, var færður á brott af lögreglumönnum. Hann var handjárnaður og blóð rann niður fótlegg hans. Hann var fluttur á brott í sjúkrabifreið.
— Boulder Police Dept. (@boulderpolice) March 23, 2021
Lögreglan vinnur nú að vettvangsrannsókn. Kerry Yamaguchi, lögreglustjóri í Boulder, segir að ekki sé búið að yfirheyra hinn handtekna og lögreglan viti ekki hvað lá að baki morðæðinu.
Maður, sem var í versluninni, sagði í samtali við ABC News að hann hafi heyrt skothvell og síðan annan. Þegar sá þriðji heyrðist byrjuðu allir að hlaupa sagði hann. Vitni sögðust hafa séð látið fólk liggja inni í versluninni og utan við hana.
Please avoid the area of Table Mesa & Broadway! This is still a very active scene. Do NOT broadcast on social media any tactical information you might see #BoulderShooting 1/2 pic.twitter.com/JE214XS86B
— Boulder Police Dept. (@boulderpolice) March 22, 2021