Þetta sagði Özlem Türeci, annar stofnandi og forstjóri BioNTech, í samtali við CNN. Hún sagði að fyrirtækið leiti nú allra leiða til að auka framleiðslugetu sína enda öskrar evrópski markaðurinn á meira magn bóluefna. En þetta er ekki auðvelt í framkvæmd og núna er stærsta vandamálið að þjálfa starfsfólk nægilega hratt. Á sama tíma reyna lyfjafyrirtækin að finna samstarfsaðila sem geti lagt sitt af mörkum í framleiðslu- og dreifingarkeðjunni.
Það bætir ekki ástandið að veiran stökkbreytist í sífellu og því hafa Pfizer/BioNTech þurft að fylgjast vel með hvort bóluefni fyrirtækjanna virki gegn þessum stökkbreyttu afbrigðum. Það virkar gegn bæði bresku og suður-afrísku afbrigðunum. Türeci sagði að það væri forgangsverkefni hjá BioNTech að finna út „hvaða afbrigði væri stærsta áhyggjuefnið“ og að vera undir það búin að geta brugðist við ef ný og enn hættulegri afbrigði verða til. Hún sagði að hin nýja og byltingarkennda mRNA-aðferð, sem bæði Pfizer/BioNTech og Modern nota í bóluefni sín, geri að verkum að ekki sé eins erfitt að laga bóluefnin að nýjum afbrigðum en samt sem áður verði að taka ný afbrigði veirunnar alvarlega en eins og staðan sé núna sé ekki ástæða til að óttast áhrif þeirra á bóluefnin.
Özlem Türeci og eiginmaður hennar, Ugur Sahin, hafa verið mikið í sviðsljósinu vegna bóluefnis Pfizer/BioNTech gegn kórónuveirunni enda er fyrirtækið leiðandi í gerð bóluefnis gegn veirunni. Þau eru á sextugsaldri, eru á meðal ríkasta fólks Þýskalands, búa í lítilli blokkaríbúð í Mainz ásamt unglingsdóttur sinni og hjóla til og frá vinnu. Þau eru þekkt fyrir að einblína á vísindin og hafa á síðustu árum unnið hörðum höndum að rannsóknum á krabbameini. Vonast BioNTech til að geta þróað bóluefni gegn ýmsum tegundum krabbameina á næstu árum.