Þegar kínverska þingið var sett á föstudaginn var frumvarpið kynnt undir formerkjum um breytingu á kosningakerfinu í Hong Kong. Wang Chen, formaður fastanefndar þingsins, sagði þá að Kína vildi „aðlaga og bæta“ kosningakerfið með því „að taka upp ákvæði um að föðurlandsvinir stýrir Hong Kong“.
Frumvarpið verður nú tekið til meðferðar hjá fastanefndinni og því liggja öll smáatriði þess ekki fyrir. En grunnforsenda frumvarpsins er að stjórnarandstaðan verður svipt öllum áhrifum. Frumvarpið á aðeins um ferlið við val á frambjóðendum til þjóðþingsins en því verður í framtíðinni stýrt af kjörstjórn sem er nú þegar til og hefur það hlutverk að útnefna pólitískan leiðtoga Hong Kong en nú en það Carrie Lam sem gegnir því embætti. Væntanlega verður fjölgað í kjörstjórninni úr 1.200 fulltrúum í 1.500. Þetta mun tryggja kommúnistaflokknum algjöra stjórn á ferlinu.
Kjörstjórnin mun einnig fá fleiri verkefni eins og að útnefna 20 eða 30 þingmenn af þeim 90 þingmönnum sem eiga að sitja á þingi Hong Kong í framtíðinni. Hún þarf einnig að samþykkja alla frambjóðendur til þings.
Eins og staðan er á þinginu núna þá verður ekki mikil breyting því stjórnarandstaða er þar ekki til staðar því síðasta haust rak kínverska stjórnin hluta af þingmönnum stjórnarandstöðunnar af þinginu því þeir þóttu ekki nægilega miklir föðurlandsvinir. Í kjölfarið hættu aðrir þingmenn stjórnarandstöðunnar að mæta til starfa.
Fyrir liggur að lágmarkskröfurnar til að vera talinn föðurlandsvinur verða að sýna Kína algjöra hollustu sem og kommúnistaflokknum.
Lögin verða nú fínpússuð á kínverska þinginu og síðan send til umsagnar hjá Carrie Lam og stjórn hennar. Lam hefur nú þegar sagt að hún sjái ekkert athugavert við þessar breytingar.