Smyglararnir hafa háar fjárhæðir upp úr krafsinu við að smygla fólki yfir sundið en nú má reikna með að sumir þeirra muni hugsa sig vel um hvort þetta sé þess virði. Samkvæmt frumvarpi, sem unnið er að í breska innanríkisráðuneytinu, verður refsiramminn fyrir smygl á fólki nú víkkaður enn frekar og geta smyglarar átt allt að lífstíðarfangelsi yfir höfði sér. Í dag er hámarksrefsingin 14 ára fangelsi en að meðaltali sitja dæmdir smyglarar í fangelsi í þrjú ár.
Á síðustu árum hefur þeim fjölgað mikið sem reyna að komast yfir Ermarsund til Bretlands á litlum og hraðskreiðum bátum. Á laugardaginn fann strandgæsla 87 ólöglega innflytjendur nærri Dover og franska strandgæslan stöðvaði för 51 til viðbótar.
Á fyrstu tveimur mánuðum ársins fór 531 ólöglegur innflytjandi yfir sundið en það eru 40% aukning frá sama tíma á síðasta ári sem var metár í þessum efnum. Þá höfðu yfirvöld afskipti af 8.417 ólöglegum innflytjendum við eða á ströndum landsins. Það voru fjórum sinnum fleiri en 2019. The Times segir að þessi aukning eigi sér stað þrátt fyrir að frönsk yfirvöld stöðvi þrjá af hverjum fjórum bátum sem smygla fólki yfir sundið.