Breska ríkisstjórnin vill bíða í nokkra mánuði með að gera tölur um þetta opinberar en verkefnið er mjög umdeilt og hefur breikkað gjánna á milli Bretlands og Kína enn frekar. Samband ríkjanna hefur farið hríðversnandi síðan kínverska stjórnin samþykkti öryggislög sem veita yfirvöldum heimild til að taka hart á stjórnarandstæðingum og lýðræðissinnum í Hong Kong sem er fyrrum bresk nýlenda.
Vegabréfið sem um ræðir nefnist BNO-vegabréf en BNO stendur fyrir British National Overseas og var tekið upp sem hluti af samningi Kína og Bretlands um að Kína fengi yfirráð yfir Hong Kong. Upphaflega voru ýmsar kvaðir um hvernig fólk gat fengið þetta vegabréf. Það var til dæmis hægt ef fólk tengdist Bretlandi sögulegum fjölskylduböndum eða hefði starfað fyrir bresku krúnuna í langan tíma. Vegabréfið veitti handhöfum sérstök forréttindi í tengslum við ferðir til Bretlands og dvöl þar. 350.000 eru nú þegar með vegabréf sem þetta.
Breska ríkisstjórnin hefur nú rýmkað þær kröfur sem þarf að uppfylla til að geta fengið BNO-vegabréf og gert það að beinni leið til ríkisborgararéttar í Bretlandi. Hugsanlega geta allar 5,4 milljónir Hong Kongbúa sótt um BNO-vegabréf. Ekki er þó reiknað með svo mikilli ásókn í vegabréfið en breska ríkisstjórnin reiknar með um 300.000 umsóknum næstu fimm árin.
Vegabréfið hafði áður mest táknræna þýðingu og veitti engin sérstök forréttindi annað en að handhafar þeirra þurftu ekki vegabréfsáritun til Bretlands. Það veitti þó hvorki dvalar- né atvinnuleyfi. Breska ríkisstjórnin breytti þessu þann 31. janúar síðastliðinn til að bregðast við handtökum á lýðræðissinnum í Hong Kong. Segist breska ríkisstjórnin hafa siðferðilegum skyldum að gegna gagnvart íbúum Hong Kong og beri að vernda þá fyrir árásum kínverskra yfirvalda.
Kínverjar hafa brugðist illa við þess og segja að vegabréfið sé ekki lengur viðurkennt sem gilt vegabréf eða skilríki. Það skiptir svo sem ekki miklu máli því Hong Kongbúar geta notað persónuskilríki eða Hong Kong vegabréf sitt til að ferðast til og frá Kína. Kínverjar gagnrýna jafnframt fyrirætlanir Breta um að ætla að heimila mörg hundruð þúsund Hong Kongbúum að flytja til Bretlands og segja það ganga gegn samningum og alþjóðlegum sáttmálum. Þeir segja þetta vera merki um „timburmenn heimsvaldasinna“.