Á heimsvísu hefur smitum fækkað síðustu sex vikur og víða er verið að ræða um að stíga varfærnisleg skref í að aflétta sóttvarnaaðgerðum í aðildarríkjum ESB. En í Tékklandi hefur smitum farið fjölgandi. Í gær greindust tæplega 15.000 smit. Það er aðallega B117 afbrigði veirunnar, stundum kallað enska afbrigðið, sem leggst þungt á Tékka þessa dagana og reynir á þolmörk heilbrigðiskerfisins. CNN skýrir frá þessu.
CNN spurði nokkra sérfræðinga út í stöðuna í Tékklandi og af hverju baráttan gegn faraldrinum hafi gengið svo illa þar. Jan Kulveit, hjá Future of Humanity Institute hjá Oxford Universitet, sagði að ríkisstjórnin hafi fylgt þeirri ólánssömu stefnu að taka ákvarðanir út frá stöðu sjúkrahúsanna, hversu mörgum þau gætu tekið við. Með þessu hafi ákvarðanirnar oft verið teknar of seint.
Andrej Babis, forsætisráðherra, viðurkenndi á föstudaginn að ríkisstjórnin hefði „gert allt of mörg mistök“ að sögn CNN. „Ég skil að þetta er erfitt en þetta er mjög nauðsynlegt. Ég vona að við sýnum því öll skilning og gefi okkur eitt tækifæri enn þannig að við komumst í gegnum þetta saman,“ sagði hann.
Rastislav Madar, farsóttafræðingur og yfirmaður læknadeildar Ostrava háskólans, segir að það séu aðallega þrenn mistök sem ríkisstjórnin hafi gert sem valdi því að staðan er svona slæm. Hann sat áður í samhæfingarnefnd kórónuveirusérfræðinga tékknesku ríkisstjórnarinnar en sagði sig úr henni þegar ríkisstjórnin vildi ekki fylgja ráðum hennar um að gera notkun andlitsgríma að skyldu í ágúst þegar faraldurinn blossaði upp á nýjan leik. CNN hefur eftir honum að það hafi verið fyrstu mistök ríkisstjórnarinnar. Þau næstu hafi verið að ákveðið var að leyfa verslunum að opna á nýjan leik fyrir jólin og þau þriðju voru að hans mati að ekki var brugðist við þegar B117 afbrigðið greindist í landinu í janúar. „Þetta voru þrenn stór mistök og nú getum við bara vonað að þau fjórðu verði ekki gerð,“ sagði hann.
Frá og með deginum í dag eru allir skólar lokaðir og landsmenn mega aðeins yfirgefa heimili sín ef „nauðsyn“ krefur. Þá er einnig bannað að fara á milli héraða landsins.