Hann lét þessi orð falla eftir að bandaríska lyfjastofnunin gaf út neyðarleyfi til notkunar á bóluefninu frá Johnson & Johnson (J&J). CNN skýrir frá þessu.
„Þessi þrjú bóluefni eru mjög áhrifarík. Ég get sagt ykkur að ég hef verið bólusettur með einu þeirra. Það var frá Moderna,“ sagði hann í „State of the Union“ á CNN. „Ef ekki væri búið að bólusetja mig núna og ég þyrfti að velja á milli þess að fá bóluefnið frá J&J núna eða bíða eftir einhverju öðru þá myndi ég taka það bóluefni sem ég gæti fengið fyrst af þeirri einföldu ástæðu, eins og ég sagði rétt áðan, að við viljum að eins margir verði bólusettir eins fljótt og unnt er,“ bætti hann við.
Bóluefnið frá J&J er fyrsta bóluefnið gegn kórónuveirunni sem aðeins þarf eina sprautu af. Virkni þess reyndist vera 72% í tilraunum með það og það veitti 86% vernd gegn alvarlegum veikindum af völdum COVID-19. Tilraunir með bóluefnið voru gerðar á 44.000 manns í Bandaríkjunum, Suður-Ameríku og Suður-Afríku.
Margir Bandaríkjamenn hafa haft áhyggjur af virkni bóluefnisins miðað við virkni bóluefnanna frá Pfizer og Moderna en þau veita um 95% vernd. Fauci sagðist skilja þessar áhyggjur en hafa þurfi í huga að til að bera bóluefnin alveg saman verði að gera samanburðarrannsókn og það hafi ekki verið gert.
J&J á nú þegar 4 milljónir skammta af bóluefninu sem geta farið strax í dreifingu og segist fyrirtækið geta afhent 20 milljónir skammta fyrir lok mars.