Bólusetningar áttu að hefjast á mánudaginn en töfðust þar sem flugvél, sem flutti bóluefnin frá Sviss, gat ekki lent í höfuðborginni Conakry vegna sandstorms. Það tókst að lenda á mánudaginn og strax var hafist handa við að dreifa bóluefnum. Stór hluti þeirra fer beint til Nzérékoré í suðausturhluta landsins en þar hafa fimm látist af völdum veirunnar að undanförnu.
Fyrsta fórnarlambið var 51 árs hjúkrunarfræðingur sem lést í janúar. Síðan létust tveir bræður hennar eftir að hafa verið viðstaddir útför hennar. Ekki liggja fyrir nánari upplýsinga um hin tvö sem létust. Að minnsta kosti fjórir eru smitaðir. Yfirvöld lýstu því formlega yfir um síðustu helgi að um faraldur væri að ræða.
Í síðasta faraldri, 2016, létust 11.300 manns í Gíneu, Líberíu og Sierra Leone.
Nú hefur veiran einnig borist til Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó en yfirvöld þar sögðu á sunnudaginn að minnst fjórir hafi látist af hennar völdum.
Ebóla veldur yfirleitt háum hita og getur í versta falli valdið blæðingum sem ekki er hægt að stöðva og verða fólki oft að bana. Veiran smitast þegar fólk kemst í snertingu við líkamsvökva smitaðs einstaklings.