Sermitsiaq skýrir frá þessu. Fram kemur að allir sem koma til Grænlands eigi að fara í sóttkví þar til þeir hafa fengið neikvæða niðurstöðu úr sýnatöku á fimmta degi eftir komuna til landsins. Annars þarf fólk að vera í sóttkví í 14 daga. En bræðurnir blésu á þetta og fóru í samkvæmi áður en þeir fóru í sýnatöku.
Þeir voru því handteknir og kærðir fyrir brot á sóttvarnarreglum. Þeir voru ölvaðir þegar þeir voru handteknir og þurfti lögreglan strax að hefjast handa við að kortleggja ferðir þeirra og hverja þeir hefðu hitt eftir komuna til landsins. „Þarna er um að ræða mjög óábyrga hegðun,“ sagði Søren Bendtsen, varðstjóri hjá lögreglunni í Nuuk, í samtali við Sermitsiaq.
Hann sagði jafnframt að bræðurnir hefðu ekki greinst með kórónuveiruna eftir að sýnatakan fór fram og því hefði ekki þurft að leggja í umfangsmikla smitrakningu. Ekki liggur fyrir hversu há sekt bræðranna verður.
Grænlensk yfirvöld hafa hvatt fyrirtæki, opinbera aðila og almenning til að sleppa því að ferðast til og frá Grænlandi. Fram til 18. apríl verða allir sem vilja koma til Grænlands að sækja um leyfi til að koma þangað. Um nauðsynlega ferð þarf að vera að ræða, til dæmis vegna menntunar, vinnu eða ef sérstakar fjölskylduástæður liggja að baki.
Samkvæmt tölum frá Johns Hopkins háskólanum hafa 30 greinst með kórónuveiruna á Grænlandi frá upphafi faraldursins en enginn hefur látist af hennar völdum.