Metro skýrir frá þessu. „Ég vildi ekki gera hann leiðan og því ákvað ég að ljúga að ég væri barnshafandi. Stundum fannst mér eins og maginn á mér stækkaði. Mér fannst ég vera ólétt. Í janúar skoðaði ég vöggur. Það er erfitt að útskýra þetta því ég vissi að ég væri ekki ólétt en ég gat ekki hætt að láta sem ég væri það,“ er haft eftir Laura.
Hún tók íbúð á leigu nærri sjúkrahúsinu og sagði Daud að hún hefði eignast tvíbura þann 3. febrúar. Viku síðar sagði hún honum að þeir hefðu látist af völdum heilablóðfalls. Þau sammæltust um að jarðsetja tvíburana við grafreit fjölskyldu hans. Hún tók dúkkur með, sem hún hafði vafið inn í líkklæði.
Þegar Daud var að leggja dúkkurnar í gröfina sagði frændi hans að hann yrði að fá að sjá andlit þeirra áður. „Ég tók frá andliti annars barnsins og sá að það var ekki með nein augu. Hvað var í gangi? Ég tók því frá andliti hins barnsins. Það var sama sagan. Þetta var dúkka . . . Dúkka,“ sagði hann.
Lögreglan er nú að rannsaka málið.