New York Post skýrir frá þessu. Konan hét Rebecca Landrith og var 47 ára.
Lík hennar fannst fyrir rúmri viku í vegkanti við hraðbraut í Pennsylvania. Hún hafði verið skotin 18 sinnum.
Í vasa hennar var miði sem leiddi lögregluna til Tracy Rollins sem er 28 ára gamall flutningabílstjóri. Hann var handtekinn þremur dögum eftir morðið og fundust blóðblettir í bíl hans en þá hafði hann reynt að fjarlægja með klór.
Miðinn í vasa Landrith var kvittun sem sýndi að hún hafði verið á sama stað og Rollins miðað við upptökur úr eftirlitsmyndavélum. Einnig var nafn hans, símanúmer og tölvupóstfang á kvittuninni.
Lögreglan telur að Landrith hafi verið myrt nokkrum klukkustundum áður en lík hennar var skilið eftir við hraðbrautina. Lögreglan hefur ekki skýrt frá ástæðu morðsins.