Þetta þýðir að verslanir, sem ekki selja nauðsynjavörur, verða áfram lokaðar sem og skólar. Þó er gert ráð fyrir að sambandsríkin geti hvert og eitt tekið ákvarðanir um enduropnun skóla. Dpa segir að í sumum sambandsríkjum hafi yfirvöld nú þegar gert áætlanir um enduropnun skóla og að hún hefjist í næstu viku.
Þeir sem eru komnir með hressilegt „kórónuhár“ fengu góð tíðindi frá Merkel í gær því hárgreiðslustofur mega hefja starfsemi á nýjan leik frá 1. mars. Hún sagði einnig að framlenging sóttvarnaaðgerðanna væri til að reyna að koma í veg fyrir nýja bylgju af faraldrinum og því væri betra að fara hægt í að aflétta sóttvarnaaðgerðum.
Merkel mun funda með leiðtogum sambandsríkjanna þann 3. mars þar sem mat verður lagt á hvort sóttvarnaaðgerðirnar verði framlengdar enn frekar eða byrjað að slaka á þeim. Dpa segir að leiðtogarnir séu sammála um að þeir muni skoða að byrja að slaka á sóttvarnaaðgerðum þegar fjöldi smitaðra er undir 35 á hverja 100.000 íbúa í sjö daga samfellt. Þegar það næst verður skoðað að leyfa verslunum að opna á nýjan leik sem og söfnum. Síðustu sjö daga er hlutfall smitaðra í landinu 78,1 á hverja 100.000 íbúa.