Tim Soignet, lögreglustjóri í Terrebonne Parish í Louisiana, skýrði frá þessu á fréttamannafundi á mánudaginn. Þar kom fram að Beaux Cormier hafi fengið þá Andrew Eskine og Dalvin Wilson til að myrða fórnarlamb nauðgunar sem ætlaði að vitna gegn honum.
Cormier, Eskine og Wilson fóru til Montegut í Lousiana til að fylgjast með heimili konunnar og reyndu að myrða hana en það mistókst.
Þann 13. janúar fór Wilson heim til konunnar og spurði eftir henni með nafni. Fyrir svörum varð Brittany Cormier, systir Beaux Cormier. Hún sagðist vera konan en með því ætlaði hún að vernda hana. Wilson skaut hana til bana og einnig nágranna hennar, Hope Nettleton, sem var í heimsókn. Hvorug þeirra var konan sem Wilson og Eskine voru ráðnir til að myrða.
Þrátt fyrir að Eskine hafi ekki verið á morðvettvanginum á hann ákæru fyrir morð af yfirlögðu ráði yfir höfði sér þar sem hann aðstoðaði við framkvæmd þess, meðal annars útvegaði hann Wilson bifreið og kom að skipulagningu þess.