Teymið hélt til Wuhan um miðjan janúar en þurfti að vera tvær vikur í sóttkví áður en það gat hafið störf í síðustu viku.
Sky News ræddi við Daszak sem sagði að teymið hefði séð nýjar upplýsingar, sem væri mjög gott. Það væru mikilvægar upplýsingar sem komi að gagni við að fara réttu leiðina í rannsókn á upptökunum.
Hann sagði að teymið hafi meðal annars farið á markaðinn þar sem veiran fannst fyrst. „Við tölum við fólk sem tók fyrstu sýnin af gólfinu á markaðnum og greindist síðan með smit. Upplýsingar sem við fáum frá þessu fólki, þær skipta miklu máli,“ sagði hann.
Teymið má ekki skýra frá niðurstöðum sínum strax en það má skýra frá hvernig það ber sig að við rannsóknina og við hverja það ræðir. Daszak sagði þó að kínverskir vísindamenn hafi deilt niðurstöðum rannsókna sinna með teyminu. „Við finnum smá vísbendingar hér og þar í þessu mikla gagnamagni. Þeir sýna okkur gögn sem enginn hefur séð áður. Þeir tala opinskátt um alla möguleika. Okkur miðar virkilega áfram og ég held að allir í teyminu hafi sömu sögu að segja.“