Samkvæmt frétt Courier Mail hafði hún tekið eftir því í nokkra mánuði að það var eins og hlutir væru færðir úr stað á heimili hennar í Rockhampton þar sem hún býr með börnum sínum. Matur hvarf og búið var að slökkva á eftirlitsmyndavélum. Hún hafði hins vegar bara ýtt þessu frá sér og ekki velt vöngum sérstaklega mikið yfir þessu.
En þegar hún kom fyrr heim á mánudaginn, en hún hafði ætlað, og sá matinn á borðinu áttaði hún sig á að eitthvað mikið var að í húsinu. Hún hringdi því strax í lögregluna sem kom á vettvang. Lögreglumenn uppgötvuðu að hlerinn, upp á háaloft, var hálfopinn. Þeir fóru upp til að kanna málið. Í ljós kom að einhver ókunnugur hafði um langa hríð búið uppi á lofti án þess að Monica vissi af því.
„Mér finnst þetta eins og atriði úr hryllingsmynd. Hvað var hann að gera uppi á lofti? Hvað hafði hann í hyggju? Ætlaði hann að vinna okkur mein? Ætlaði hann að ræna einu af börnunum mínum? Það er mitt hlutverk að vernda þau og mér finnst að mér hafi mistekist það,“ sagði Monica í samtali við 9News.
Talsmaður lögreglunnar sagði málið „alveg einstakt“.
Monica telur sjálf að viðkomandi hafi komist inn í húsið með því að stela bíl- og húslyklum hennar. Lögreglan vinnur enn að rannsókn málsins.