Brynvarinn lúxusbifreiðin sem flutti Joe Biden til innsetningarathafnarinnar var með númeraplötuna 46. Talan táknar að hann sé 46. forseti Bandaríkjanna. Númeraplata bifreiðar Kamala Harris var 49 en hún tók við sem 49. varaforseti Bandaríkjanna.
Joe Biden sór embættiseið með því að leggja vinstri höndina á biblíu sem hefur verið í eigu fjölskyldu hans síðan 1893. Hann notaði þessa sömu biblíu þegar hann sór embættiseið sem varaforseti 2009 og 2013 og þegar hann sór eið sem þingmaður fyrir margt löngu. Beau, heitinn sonur hans, sór einnig eið við þessa biblíu þegar hann varð dómsmálaráðherra í Delaware.
Það var tímanna tákn að Biden hélt fjarfund í Hvíta húsinu að embættistöku lokinni. Þar ræddi hann við væntanlega ríkisstjórn sína og starfsfólk. Hann stóð fyrir framan stóra skjái og starfsfólkið sór embættiseið.
Þvert á það sem allir héldu þá skildi Donald Trump eftir bréf til Biden. Það er löng hefð fyrir því að fráfarandi forseti skilji eftir bréf til arftaka síns og bjóði hann velkominn og veiti góð ráð. Ekki er vitað hvað stóð í bréfi Trump.
Sérstakur starfsmaður sá um að þurrka af ræðupúltinu við innsetninguna í gær en það er auðvitað í anda sóttvarnaráðstafana sem eru í gildi.
Á meðan Biden sór embættiseið kraup einkennisklæddur maður við gröf sonar hans, Beau, í Delaware.
Poignant moment: While Joe Biden gave his inauguration speech, a lone man in a uniform knelt at the Delaware grave of his son Beau. pic.twitter.com/QkCuJRHzTz
— Patricia Talorico (@PattyTalorico) January 20, 2021
Kamala Harris var fylgt til athafnarinnar af Eugene Goodman, lögreglumanni, sem var hylltur fyrir að hafa leitt ofbeldisfólk, sem réðst inn í þinghúsið þann 6. janúar, á brott frá sölum öldungadeildarinnar.
Það var Sonia Sotomayor, hæstaréttardómari, sem sá um athöfnina þegar Harris sór embættiseið. Engin tilviljun því Sotomayor er fyrsta manneskjan af suður-amerískum ættum til að gegna embætti hæstaréttardómara í Bandaríkjunum.
Þegar Lady Gaga hafði lokið við að flytja þjóðsönginn og yfirgaf ræðurpúltið var það Barack Obama, fyrrum forseti, sem var fyrstur til að hrósa henni fyrir sönginn en þau hafa lengi verið vinir.
Amanda Gorman, 22 ára, sem flutti ljóð við athöfnina var yngsta manneskjan til að sjá um upplestur á innsetningarathöfn forseta.