Áður en Donald Trump var kjörinn forseti Bandaríkjanna var hann þekktur fyrir viðskiptaveldi sitt sem ber nafn hans. En vörumerkið „Trump“ er nú ansi skaddað eftir þau fjögur ár sem hann sat á forsetastóli og embættistíðin gæti reynst honum dýrkeypt, fjárhagslega.
Þetta hefur AFP eftir sérfræðingum. Í kjölfar þess að stuðningsfólk Trump réðist inn í þinghúsið í Washington hafa mörg fyrirtæki skorið á tengslin við fyrirtækjasamsteypu hans eða eru að því. Meðal þeirra eru Signature Bank sem hefur lokað persónulegum reikningi Trump og PGA of America sem hætti við að halda meistaramótið 2022 á golfvelli Trump í New Jersey. Viðbrögð fjármálaheimsins eru ekki bara merki um að verið sé að taka afstöðu gegn Trump á tímapunkti þar sem hann er fordæmdur af mörgum í bandarísku samfélagi. Þetta er einnig merki um að viðskiptaveldi hans sé í mikilli krísu, ekki síst vegna heimsfaraldursins.
Mörg samtök í atvinnulífinu hafa gagnrýnt þátt Trump í árásinni á þinghúsið, þar á meðal stærstu samtök stéttarfélaga, AFL-CIO.
„Nafn Trump er byrði í dag,“ sagði Michael D‘Antonio sem skrifaði ævisögu Trump 2015. Hann segir að árásin á þinghúsið hafi gjörbreytt stöðunni fyrir vörumerki forsetans. „Hann er umtalaðasti forseti sögunnar. Þetta er maðurinn sem er táknmynd fyrir ofbeldisfulla árás á bandaríska þingið. Þetta fór úr böndunum,“ sagði hann.
Tim Calkins, prófessor í markaðsfræðum við Northwestern University Kellogg School of Management, telur að vörumerkið Trump muni eiga í vök að verjast um langa hríð vegna atburða liðanna ára og þeirra ringulreiðar sem nú ríkir. „Áður en hann tók við embætti stóð Trump fyrir velmegun, góðan árangur og yfirdrifinn lúxus. Nú er þetta vörumerki sem er tengt við skoðanir andstæðar stjórnvöldum, kynþáttahatur og öfgahyggju. Þetta gerir vörumerkið mjög eitrað,“ sagði hann.