fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Pressan

Afhjúpa villta fortíð Tiger Woods í nýrri heimildamynd – „Allt að tíu í einu“

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 8. janúar 2021 05:20

Tiger Woods.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Golfstjarnan Tiger Woods er væntanlega ekki neitt sérstaklega ánægður með nýja heimildamynd, í tveimur hlutum, sem HBO tekur til sýninga um helgina en þá verður fyrri hlutinn sýndur. Heimildamyndin snýst um líf Tiger og að sögn er farið ansi djúpt ofan í þær miklu hremmingar sem Tiger Woods lenti í 2010. Þá slitnaði upp úr hjónabandi hans og Elin Nordegren eftir að upp komst um kerfisbundið framhjáhald hans.

Nú þegar hefur töluverð gagnrýni komið fram um myndina og þykir gagnrýnendum of mikil áhersla lögð á þennan erfiða tíma lífs hans. Svo eru auðvitað þeir sem bíða spenntir eftir að sjá myndina.

Eftir því sem fram kemur í myndinni þá fór að síga á ógæfuhliðina hjá Tiger 2006 þegar faðir hans, Earl Woods, lést en hann var helsta fyrirmynd Tiger. Hann er sagður hafa leitað huggunar í partýborginni Las Vegas eftir andlátið þar sem áfengis var neytt í miklum mæli og mörg hundruð þúsund dollarar fuku hvað eftir annað þegar hann skemmti sér með vændiskonum. Að sögn þá koma margar af þessum konum fram í myndinni og segja frá hvað gerðist.

„Annan hvern mánuð bað hann um fleiri stelpur. Það gátu verið allt að tíu í einu. Honum líkaði vel við ungar „háskólatýpur“. Gjarnan ljóshærðar,“ segir Michelle Braun í myndinni en hún kynntist Tiger í Las Vegas.

Joe Grohman, fyrrum fjölskylduvinur Woodsfjölskyldunnar, segist skilja vel að hlutirnir hafi farið svona því hann og Earl Woods hafi ekki verið bestu fyrirmyndirnar þegar kom að því að halda sig innan ramma hjónabandsins. „Earl átti lítinn tjaldvagn og við leyfðum honum að kenna á golfvellinum. Þar kenndi hann mjög aðlaðandi ljóshærðum konum. Ég komst aldrei að hvernig hann komst í samband við þessar konur. Eftir kennslustundirnar var þeim oft boðið inn í tjaldvagninn í „kokteil“, segir hann að sögn news.com.au.

Þetta telur Grohman að hafi haft mikil áhrif á Tiger. „Tiger var á vellinum og ég var næstum því jafn slæmur. Lengi vel voru Earl og ég stærstu fyrirmyndir hans í lífinu og svo var ég að eltast við konur og það sá hann. Ég var kvæntur. Að hafa þessi áhrif á barn á þroskaskeiði þess. Fyrirgefðu vinur,“ sagði Grohman.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Hafa risavaxnir menn einhvern tímann verið til?

Hafa risavaxnir menn einhvern tímann verið til?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Athyglisverðar myndir prýða 1.600 ára gamlar myntir sem fundust á Ermarsundseyjunum

Athyglisverðar myndir prýða 1.600 ára gamlar myntir sem fundust á Ermarsundseyjunum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Páfagarður bannfærir erkibiskup sem sagði Frans páfa vera „þjón djöfulsins“

Páfagarður bannfærir erkibiskup sem sagði Frans páfa vera „þjón djöfulsins“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Færð þú frið í sumarfríinu? Fyrirtæki hafa samband við þriðja hvern starfsmann í sumarfríinu

Færð þú frið í sumarfríinu? Fyrirtæki hafa samband við þriðja hvern starfsmann í sumarfríinu
Pressan
Fyrir 5 dögum

Sjö ávanar sem gera tannlækninn þinn ríkan

Sjö ávanar sem gera tannlækninn þinn ríkan
Pressan
Fyrir 5 dögum

Fjallgöngumaður hvarf fyrir 22 árum – Fannst nýlega

Fjallgöngumaður hvarf fyrir 22 árum – Fannst nýlega
Pressan
Fyrir 5 dögum

„Gerist bara einu sinni á ævinni“ – Einstakt tækifæri til að sjá sprengingu á dvergstjörnu

„Gerist bara einu sinni á ævinni“ – Einstakt tækifæri til að sjá sprengingu á dvergstjörnu
Pressan
Fyrir 5 dögum

Grunaður um að hafa myrt konu og dætur íþróttafréttamanns með lásboga

Grunaður um að hafa myrt konu og dætur íþróttafréttamanns með lásboga