Bólusetning er talin mikilvægasta og besta leiðin út úr heimsfaraldrinum sem hefur haft gríðarleg áhrif á efnahagslíf heimsins og haft mikil áhrif á líf milljarða manna um allan heim. Nú hafa tæplega 1,9 milljónir látist af völdum veirunnar.
Samkvæmt bresku bólusetningaáætluninni á í fyrstu að bólusetja eldra fólk, meðal annars íbúa á dvalarheimilum, fólk með alvarlega sjúkdóma og almennt lélegt heilsufar auk framlínufólks.
Samkvæmt upplýsingum frá þeim aðstoðarráðherra, sem ber ábyrgð á bólusetningaráætluninni, er nú þegar búið að bólusetja fjórðung allra eldri en 80 ára. Í heildina er búið að bólusetja 1,3 milljónir Breta gegn veirunni. Þegar aðstoðarráðherrann var spurður hvort það væri raunhæft að ná að bólusetja um 14 milljónir manna fyrir miðjan febrúar sagði hann að til þess þurfi að vinna þrekvirki. Sky News skýrir frá.
Bretland er í fimmta sæti hvað varðar fjölda látinna í heimsfaraldrinum. Efnahagslíf landsins hefur farið mjög illa út úr honum. Síðustu daga hafa rúmlega 50.000 smit greinst daglega í landinu og á þriðjudaginn voru þau 60.916 en það var í fyrsta sinn sem fjöldinn fór yfir 60.000 á einum sólarhring. Þegar faraldurinn var í hámarki í vor fór fjöldi daglegra smita aldrei yfir 7.000 en það þarf að hafa í huga að þá var ekki hægt að taka eins mörg sýni og nú er gert. BBC segir að talið sé að í vor hafi smitin í raun verið um 100.000 á sólarhring.