Hér í Evrópu erum við vön að geta greitt með kortum næstum hvar sem er en í Bandaríkjunum er miklu útbreiddara að greitt sé með reiðufé. Heimsfaraldur kórónuveirunnar hefur haft í för með sér að margar verslanir hafa þurft að loka og því eru færri sem gefa klink til baka. Auk þess var gert hlé á myntsláttu í nokkrar vikur í vor og byrjun sumar. En nú ganga myntsláttuvélarnar stanslaust og 1,6 milljarður mynta er settur í umferð mánaðarlega.
En það dugir ekki til að sögn Bloomberg. Að minnsta kosti ekki fyrir Las Vegas. Þar gera spilavítin mikið út á spilakassa sem er hægt að setja 25 cent í. Mörgum þeirra hefur verið breytt þannig að fólk setur pappírsmiða í þá sem keyptir eru í spilavítunum en víða hefur verið haldið fast í gamlar hefðir og klinkið.
Bankar geta aðeins afgreitt smávegis af því klinki sem spilavítin hafa þörf fyrir. Til dæmis pantaði El Cortez spilavítið nýlega 25 centa myntir fyrir 30.000 dollara. Aðeins 500 dollarar fengust afgreiddir.
Þetta hefur neytt spilavítin til að finna nýjar leiðir til að fá gesti sína til að taka eins mikið af smámynt, úr sparibaukum sínum, með og hægt er. Eitt býður til dæmis 10 dollara aukalega ef komið er með mynt að andvirði 50 dollara. Í öðru spilavíti fær fólk stuttermabol að launum fyrir að koma með mynt og enn annars staðar fær það hatt.
Spilavíti og bankar hafa afnumið þjónustugjöld fyrir að láta telja klink og hvetja viðskiptavini sína til að taka til heima hjá sér og grafa upp allt það klink sem þar leynist.