CNN skýrir frá þessu. Brúin sem um ræðir heitir Lakshman Jhula og er um fimm kílómetra norðan við borgina Rishikesh. Samkvæmt trúnni þá fór guðinn Lakshmana yfir Gangesfljótið þar sem brúin stendur nú. Hann gekk yfir hana á reipum úr jurtum. Ganges er heilagt fljót í augum hindúa en fljótið rennur 2.700 km leið í gegnum Indland og Banglades.
CNN hefur eftir talsmanni lögreglunnar að konan hafi tekið myndbandið upp til að nota sem auglýsingamyndband fyrir skartgripasölu sína.
„Hún tók myndbandið upp á Lakshman Jhula sem er talin heilög brú. Hún tók síðan upp klámfengið myndir á hótelinu sínu. Þetta voru nektarmyndir og hún birti þær á Instagram,“
Hefur CNN eftir talsmanninum sem sagði að konan hafi verið með sjal í upphafi myndbandsins en hafi síðan látið það falla og nakin bakhlið hennar sjáist á upptökunni.
Lögreglunni var gert viðvart um málið eftir að fylgjendur konunnar þekktu brúna á myndunum og myndbandinu. Bæjarráðsmaður kvartaði einnig til lögreglunnar.
Konan var látin laus gegn tryggingu en á ákæru yfir höfði sér fyrir klámfengið athæfi á almannafæri og fyrir að hafa birt klámefni opinberlega.